|
Touch-store Val á milli Median og Point fyrir posaþjónustu. Breyting á útliti á dagsuppgjöri, hægt að fá sundurliðun sölu pr. Vöruflokk inn á uppgjörið, Ástæður afsláttar, þegar veittur er afsláttur er hægt að þvinga fram glugga þar sem afgreiðslufólk verður að tilgreina ástæðu fyrir afslátt. Þessar ástæður má svo kalla fram á dagsuppgjöri og sjá veltu og fjáræðir veittar í afslátt. Gjafabréf má prenta út á Laserprentara / geislaprentara með sérsniðið útlit. Litir og stærðir komið inn á birgðaspjald í Touch-store. Rofi sem heitir "senda á vef". Aukaeining fáanleg sem getur sent vörur með myndum og birgðastöðu á vefinn með reglulegu millibili. Límmiðar / hillumiðar á A4 miða td. Avery’s spjöld. Vöruuppgjör sem sýnir seldar vörur á tímabili sem hægt er að nota við áfyllingar í verslun af lager. Hægt að komast í flýtihnappauppsetningu beint úr Touch-store. Ný réttindi á sölumann; Má opna viðskiptamannaspjald. Stofnun uppskrifta gerð einfaldari og skilvirkari.
Touch-office Nýjar birgðaútprentannir; Verðmæti lagers pr. Birgja, Birgjagreining – sýnir framlegðarútreikning á vörusölu pr. Birgja ofl. Birgðabók/talningabók tengd við fleiri gerðir af handtölvum. Nýjar viðskiptamannaútprentannir; Sala sölumanna, innheimtubréf ofl. Innkaup og pantanir; möguleiki á að stofna innkaupapöntun, prenta eða senda með tölvupóst. Innlestur frá birgjum – hægt að lesa inn excellista með vörum og strikamerkjum sem og magntölum, lesa inn og stofna birgðir, strikamerki og innkaupapöntun með einföldu móti – sparar mikla innsláttarvinnu. Tímaskráningarskýrslur hafa verið uppfærðar.
Þetta er aðeins smá úrtak af þeim breytingum sem gerðar hafa verið á kerfinu síðan síðast.
|